Ótrúlegt úrræðaleysi og vandræðagangur.

Hvað þurfum við að bíða lengi eftir einhverjum aðgerðum fyrir heimilin og fyrirtækin. Því gefa stjórnvöld þetta ekki frá sér ef þau geta ekkert í málinu gert. Stjórnvöld eru búin að starfa í á annað hundrað daga og enn standa heimilin í björtu báli. Ekki bætir úr að ráðherrar séu með yfirlýsingar fullar af  hroka og hótunum í garð þeirra sem eru að  kalla eftir aðgerðum svo sem þeirra sem nefna að hætta að greiða af lánum. Hætta ekki flestir hvort sem er ef ekkert verður að gert? 
mbl.is Margir íhuga greiðsluverkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Þessi ríkisstjórn greinilega getur ekki og gerir ekki.  Held að það hafi ekkert með flokka að gera. Þeir eru greinilega allir getulausir.

Ævar Rafn Kjartansson, 3.5.2009 kl. 21:40

2 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Stundum efast ég hreinlega um að Ríkisstjórnin sé að tala um ástandið hér á Íslandi. Þau eru svo mikið úr sambandi við þjóðina og það sem er að gerast hérna.

Gylfi Björgvinsson, 3.5.2009 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband