Skoða þetta vel Geir

Gott framtak hjá félagi viðskipta og hagfræðinga, vonandi skoða stjórnvöld þessar tillögur vel og taka mark á því sem í þessum skýrslum stendur.

 


mbl.is Viðskipta- og hagfræðingar afhenda stjórnvöldum tillögur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prestarnir á móti Jólasveinum

Eiga prestarnir ekki að að boða það sem er fallegt og fagurt

 

 


mbl.is Vill banna jólasveina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geirmundur Sveiflukóngur

Þau eru næstum óteljandi böllin sem ég  hef verið á með Geirmundi Valtýrssyni í gegnum  tíðina og í minnungunni eru þau öll frábær og vonandi á ég eftir að fara á mörg böll með honum í viðbót

 


mbl.is Geirmundur með þjóðinni í 50 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorvald Gylfason Forsætisráðherra utanþingstjórnar

Þorvaldur er virtur prófessor  og væri einn hæfastur manna hérlendis til að geta náð landinu á rétta braut. Hann mundi svo  sjálfur velja sér samstarfsráðherra  til að ná árangri.

Allir geta séð að ríkisstjórn með 30 % fylgi getur ekki starfað enda er hún að gera okkur sem eitthvað eigum eignalaus


mbl.is Stjórnmálakreppa ríkir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækka svo bæturnar

Hvað ætlar svo Geir  að gera við það sem sparast  5 til 15 % launalækkun þeirra sem hafa um og yfir miljón á mánuðu og margir örugglega tvær, eru hellings peningar, hvernig væri að hækka með því atvinnuleysisbæturnar og aðrar bætur sem fólk þarf að lifa af

 

 


mbl.is Óska eftir launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valgerður líka

Guðni Ágústson sýnir og sannar að hann axlar ábyrgð á því ástandi sem nú ríkir á Íslandi, fyrstur flokksformannanna segir hann af sér. Auðvitað eiga fleiri og helst allar flokksforystur að gera það sama og Guðni, Alþingi íslendinga nýtur ekki trausts almennings hvað þá stjórnvöld. Valgerður Sverrisdóttir á líka að segja af sér hún ber líka ábyrgð

 

 


mbl.is Afsögn Guðna kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru allir peningarnir

Hvar eru allir peningarnir sem voru lagðir inná Icesave London og Hollndi?

 

 

 


mbl.is Icesave-deilan leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með vísitöluna

Loksins kemur eitthvað af viti frá einhverjum  stjórnmálaflokknum
mbl.is Framsókn: Ríkisstjórnin hvetur til viðskiptalegs siðrofs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru stjórnvöld getulaus

Geta íslensk stjórnvöld leitt okkur á beinu brautina án þess að setja okkur flest í þrot? Ég leifi mér að efast stórlega um það. Nánast dag hvern birtast okkur hvert hneikslið af öðru, hvert öðru furðulegra.

Á sama tíma og fréttir berast af niðurfellingum miljarða skulda valinna manna  er séreignarsjóðir okkar hinna skertur, þetta hljómar ekki vel.Ég vil sjá stórt teymi hagfræðinga og sérfræðinga til ráðgjafa fyrir stjórnvöld, kröftugt teymi sem mundi beita þeim ráðum  sem best eru til endurreisnar. Það hefur  sýnt sig að hvorki stjórn eða stjórnarandstaða hefur það sem til þarf, hafa ekki traust  almennings og virðast vera lesa vittlausar skólabækur. Þetta hafa nokkrir hagfræðingar  sagt opinberlega og við hljótum að sjá að þeir hafa mikið til síns máls.Við almenningur getum nánast ekkert gert nema horft á húsnæðislánin okkar hækka um fleiri hundruð þúsund í hverjum mánuði á sama tíma og verðmæti eignana rýrna. Hvar mundi svona vittleysa viðgangast nema í einhverskonar stjórnleysi

Kreppu ljóð

 

Þoturnar þagna

lágt er dagsins stef

Þrotinn er sjóður

engan aurinn hef

Myrkrið magnast

já nú er níðdimm nótt

Mögnuð sú stund

er bælir allan þrótt

Spilling og skömm

ég varla fyrir sef

Sjálfstæði þjóðar

er borið fyrir ref

Fögnuð og frið

nú hvergi er í sinni

Flestir nú slæpast

halda sig mest inni

 Í búðinni blasa við

fullt af hillum tómum

Á bláköldu strætinu

hangir fullt af rónum

Í kirkju fólk kjagar

í von að Guð sinn finni

Í kyrðarstund vonar

að ástandinu linni

Bílarnir standa

bensín litlir heima

Byrgðir á þrotum

nei þig er ekki að dreyma

Haustar með hreti

kaldir vindar geisa

Hrúfar sig saman

hnútinn þarf að leysa

Feðurnir flón

sem landið okkar teyma

Fáum við hjálp

að ná á götu beina

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband